Vitni óskast
Imported from official source
Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst s.l. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið. Þau sem urðu vitni að líkamsárásinni eða hafa einhverjar upplýsingar um hana eru beðin að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected].
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 03, 2026 20:38
- Change
- Initial
- Content hash
4e15ef4dcc010c20790122a75c1385ee- All versions
- Revision history