Losun dregst saman en frekari aðgerða þörf til að markmið náist

Imported from official source

Announcement

„Góðu fréttirnar eru þær að við erum að þokast í rétta átt og sjáum örlítinn heildarsamdrátt í losun á milli ára. En slæmu fréttirnar eru þær að við erum langt á eftir áætlun. Þetta þarf að gerast miklu hraðar ef við ætlum að ná markmiðum Íslands,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, á kynningarfundi í dag um nýjar losunartölur fyrir Ísland og stöðu loftslagsaðgerða.

Á fundinum voru kynntar bráðabirgðatölur Umhverfis- og orkustofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda árið 2025. Samkvæmt þeim er heildarsamdráttur í losun 3,9% milli 2025 og 2024. Endanlegar tölur verða staðfestar í mars 2027.

Losun frá landi dregst saman um 2,2% og losun frá staðbundnum iðnaði dregst saman um 11%, aðallega vegna bilunar hjá Norðuráli og rekstrarstöðvunar PCC Bakka. Samfélagslosun minnkar um 2,7% milli ára, þ.e. losun frá vegasamgöngum, landbúnaði, sjávarútvegi, jarðvarmavirkjunum, vörunotkun og úrgangi. Í tilfelli vegasamgangna eykst þó losun lítillega, eða um 1,3%, sem skýrist m.a. af minni íblöndun hreinorkugjafa í jarðefnaeldsneyti.

Góður gangur á forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum

Fyrir ári, í september 2025, tilkynnti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra breytta nálgun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Ráðist var í allsherjartiltekt á aðgerðaráætlun í loftslagsmálum, sem þá taldi um 150 aðgerðir, og fjögur verkefni sett í forgang þvert á ráðuneyti. Jóhann Páll segir breytta nálgun þegar hafa skilað sér í hraðari innleiðingu og framkvæmd loftslagsaðgerða.

Forgangsverkefnin voru endurheimt votlendis og vistkerfa, hraðari orkuskipti í vegasamgöngum, grænn fjárfestingarstuðningur við bændur og stuðningur við þróun tæknilausna til þess að draga úr losun frá stóriðju. Áhrifa aðgerðanna mun gæta í losunartölum á næstu árum.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-22-losun-dregst-saman-en-frekari-adgerda-thorf-til-ad-markmid-naist

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-09-22-losun-dregst-saman-en-frekari-adgerda-thorf-til-ad-markmid-naist

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.