Andri Snær Magnason hlýtur Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Imported from official source

Announcement

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti í dag á Degi íslenskrar náttúru Andra Snæ Magnasyni Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar  og er þetta í sautjánda sinn sem hún er afhent.

Andri Snær hefur um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd og loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélag. Hann hefur meðal annars beint sjónum að verndun íslenskrar náttúru, jöklum landsins, súrnun sjávar og þeim grundvallarbreytingum sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér.

Andra Snæ hefur tekist að gera flókin umhverfis- og loftslagsmál skiljanleg og aðgengileg almenningi. Hann hefur kynnt sér vísindalegar rannsóknir og miðlað niðurstöðum þeirra á aðgengilegan hátt, meðal annars með bókum, kvikmyndum, fyrirlestrum og virkri þátttöku í samfélagsumræðu. Með því hefur hann brúað bil milli vísinda og almennings og vakið athygli á ábyrgð núlifandi kynslóða gagnvart náttúrunni og komandi kynslóðum.

Andri Snær hefur jafnframt lengi tekið virkan þátt í umræðu um nýtingu og vernd íslenskrar náttúru. Í Draumalandinu, sem kom út árið 2006, fjallaði hann meðal annars um náttúruvernd, orkumál og íslenska hálendið og vakti verkið mikla samfélagsumræðu um verðmæti náttúrunnar og ákvarðanir um nýtingu hennar.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/andri-snaer-magnason-hlytur-natturuverndarvidurkenningu-sigridar-i-brattholti

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
andri-snaer-magnason-hlytur-natturuverndarvidurkenningu-sigridar-i-brattholti

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.