Fjölbreyttir viðburðir í samgönguviku

Imported from official source

Announcement

Fjölbreyttir viðburðir verða að vanda á dagskrá í Evrópskri samgönguviku, sem hefst miðvikudaginn 16. september og stendur til 22. september, en þema vikunnar að þessu sinni er Samgöngur fyrir öll.

Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi.

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Með þema vikunnar að þessu sinni er þá lögð áhersla á að skapa aðgengilegt og öruggt samfélag fyrir alla – óháð aldri og hreyfigetu.

Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar hér á vef Stjórnarráðsins, á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook-síðu vikunnar.

Meðal þeirra viðburða sem eru á dagskrá að þessu sinni má nefna Samgönguráðstefnu ITS sem fer fram á upphafsdegi samgönguviku, 16. september,

Þá býður Orkuveitan til Auðlindahrings í Elliðaárdalnum þann 17. september í tilefni af samgönguviku og þennan sama dag kl. 16 verða BMX Bros með námskeið og sýningu á Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ.

Betri samgöngur og Almenningssamgöngur, áður Strætó, verða með opið hús frá 18. september frá kl. 14-16 í nýjum húsakynnum sínum í Hafnarstræti 7.

Formleg vígsla nýrrar hjóla- og göngubrúar yfir Elliðaár við Dimmu fer síðan fram 21. september kl. 9.30.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/fjolbreyttir-vidburdir-i-samgonguviku

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
fjolbreyttir-vidburdir-i-samgonguviku

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.