1,5 gráðu hlýnun orðin óumflýjanleg, en ennþá hægt að takmarka skaðann

Imported from official source

Announcement

Ný skýrsla Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP), Limiting Overshoot - Navigating exceedance of 1.5°C and pathways towards return, dregur upp alvarlega mynd af stöðu loftslagsmála í heiminum. Ekki er lengur talið raunhæft að koma í veg fyrir að hnattræn hlýnun fari yfir 1,5°C til lengri tíma. Enn er þó hægt að hafa mikil áhrif á hversu alvarleg og víðtæk áhrif loftslagsbreytinga verða.

Þótt ekki takist að halda hlýnun innan 1,5°C markmiðs Parísarsamningsins skiptir áfram miklu máli hvort hlýnun verður 1,6°C, 1,8°C eða meiri. Áhættan eykst með hverri tíund úr gráðu, samkvæmt skýrslunni. Meiri hlýnun eykur meðal annars hættu á hraðari hækkun sjávarborðs, hraðara tapi vistkerfa, fleiri hitabylgjum, gróðureldum og umfangsmiklum breytingum á jöklum og íshellum. Jafnframt eykst hættan á óafturkræfum breytingum loftslags- og vistkerfa. Sum áhrif geta varað áfram jafnvel þó hnattrænt hitastig lækki síðar.

Í skýrslunni er settur aukinn þungi á mikilvægi loftslagsaðgerða á næstu árum svo takmarka megi frekari hlýnun og snúa þróuninni við.

Hraður samdráttur í losun koldíoxíðs, metans og annarra gróðurhúsalofttegunda getur haldið aftur af frekari hlýnun. Um leið þarf að stuðla að aðlögun að þeim áhrifum loftslagsbreytinga sem þegar eru komin fram og þeim sem ekki verður komist hjá. Til að ná hitastigi aftur niður eftir að hlýnun nær hámarki er nauðsynlegt að fjarlægja meira af koldíoxíði úr andrúmsloftinu en losað er.

Veiking hafstrauma skiptir Ísland miklu máli

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/1-5-gradu-hlynun-ordin-oumflyjanleg-en-enntha-haegt-ad-takmarka-skadann

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
1-5-gradu-hlynun-ordin-oumflyjanleg-en-enntha-haegt-ad-takmarka-skadann

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.