Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21

Imported from official source

Announcement

Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Markmiðið er að tryggja að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum* og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverju einasta þéttbýli á landinu. Átakið er liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa og hækkandi olíuverðs. Markmiðið er að gera sem allra flestum Íslendingum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni og keyra um á hreinni íslenskri orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við afnámum vörugjöld af rafbílum í upphafi árs og nú snarfjölgum við hleðslustöðvum vítt og breitt um landið, eyðum þannig skallablettunum í hleðslunetinu og vinnum gegn hleðslukvíða. Skilaboðin eru þessi: Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagnsbíl. Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir íslenska orku spörum við tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.“

Alls hljóta 17 verkefni víðs vegar um land styrki, þar af 13 verkefni til uppsetningar á hraðhleðslustöðvum í þéttbýli og fjögur til uppsetningar á þjóðvegakerfinu og nemur heildarupphæð styrkveitingar 151 m.kr. Með átakinu fjölgar hleðslustöðvum á landsbyggðinni um samtals 21 og tenglum um 41 og alls staðar verður boðið upp á greiðslu með greiðslukorti án þess að app eða áskrift þurfi til.

Mynd: Staðsetningar verkefna sem hljóta styrk. Verkefnaflokkur A er merktur með rauðum lit og verkefnaflokkur B er merktur með grænum lit.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/b30a298e-74c5-4793-bb33-6baad9d53233

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
b30a298e-74c5-4793-bb33-6baad9d53233

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.