Sameiginlegur vinnufundur Loftslagsráðs og verkefnisstjórn loftslagsaðgerða

Imported from official source

Announcement

Fulltrúar í Loftslagsráði og verkefnisstjórn stjórnvalda um loftslagsaðgerðir komu saman til sameiginlegs vinnufundar í gær, og er það í fyrsta sinn sem hóparnir tveir funda með þessum hætti. Markmið fundarins var að styrkja samtal og samstarf þeirra sem koma að mótun, framkvæmd og mati á loftslagsaðgerðum stjórnvalda og skapa vettvang fyrir miðlun þekkingar og sjónarmiða.

Á fundinum fluttu erindi dr. Bjarni Már Magnússon, sérfræðingur í þjóðarétti og umhverfis- og loftslagsrétti en hann fjallaði um nýlega álitsrgerð loftslagsráðs um ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga og þýðingu þess fyrir Ísland.Dr. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands sem fjallaði um samfélagslegt mat loftslagsaðgerða og áhrifa þeirra á mismunandi hópa samfélgasins. dr. Stefan Rahmstorf, prófessor í hafeðlisfræði við Háskólann í Potsdam og fjallaði um stöðu þekkingar og nýjustu rannsóknir á veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) og þau áhrif sem breytingar á hringrásinni geta haft á svæðinu í kringum Ísland.

Fundurinn var meðal annars hugsaður til að efla kynni og þekkingarmiðlun milli Loftslagsráðs og verkefnisstjórnar og styrkja samtal þeirra. Formleg tengsl þeirra eru mikilvæg enda leggur Loftslagsráð faglegt mat á aðgerðaráætlanir sem verkefnisstjórnin mótar og bregst við skýrslum hennar um framgang loftslagsaðgerða.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-08-27-Sameiginlegur-vinnufundur-Loftslagsrads-og-verkefnisstjorn-loftslagsadgerda

Officially imported this from Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Environment, Energy and Climate (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Umhverfis-orku-og-loftslagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:32
Versions
1 recorded
Identity
2026-08-27-Sameiginlegur-vinnufundur-Loftslagsrads-og-verkefnisstjorn-loftslagsadgerda

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.