Ísland fært í fyrsta flokk í baráttunni gegn mansali

Imported from official source

Announcement

Sanctions Classified by Officially

Ísland uppfyllir nú allar lágmarkskröfur í baráttunni gegn mansali samkvæmt nýrri skýrslu bandarískra stjórnvalda. Ísland hefur því verið fært upp í fyrsta flokk og er þar í hópi 30 ríkja af þeim 188 sem fjallað er um í skýrslunni.

Mansal er skilgreint sem gróft mannréttindabrot, sem felst í að brjóta gegn friðhelgi einstaklings. Brotastarfsemin beinist gegn frjálsræði og helgustu persónuréttindum einstaklings í þeim tilgangi að hagnýta líkama viðkomandi eða vinnukrafta í annars þágu.

Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur síðan árið 2001 birt árlega skýrslu um mansal (Trafficking in human beings report). Í skýrslunni er fjallað um stöðu mansalsmála í ríkjum heimsins og aðgerðir stjórnvalda einstakra ríkja í baráttunni gegn mansali. Skýrslan byggir á úttekt þar sem aflað er upplýsinga frá stjórnvöldum, félagasamtökum og úr ýmsum öðrum áttum.

Ríki eru flokkuð í þrjá flokka og hefur Ísland frá árinu 2017 verið í öðrum flokki og því ekki talið uppfylla allar lágmarkskröfur í baráttunni gegn mansali, þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld hafi verið talin sýna mikla viðleitni í þá átt.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-20-Island-faert-i-fyrsta-flokk-i-barattunni-gegn-mansali

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 18:45
Versions
1 recorded
Identity
2022-07-20-Island-faert-i-fyrsta-flokk-i-barattunni-gegn-mansali

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.