Svigrúm til að vinna úr sorg

Imported from official source

Announcement

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, ávarpaði í gær ráðstefnu Sorgarmiðstöðvarinnar um skyndilegan missi. Ráðherra benti á að lengi vel hafi þótt mikill persónulegur styrkleiki að bera ekki tilfinningar sínar á torg. Allt að hetjulegt hafi þótt að harka af sér og bera harm sinn í hljóði – en harmurinn hafi hvergi farið.

„Sem betur fer erum við ekki lengur á þessum stað en áttum þó alltaf eftir að stíga fyrstu skrefin í því að viðurkenna lagalegt mikilvægi þess að fólk þurfi að fá svigrúm til sorgarúrvinnslu,“ sagði ráðherra og undirstrikaði að löngu hefði verið orðið tímabært að löggjafinn tryggði fjölskyldum slíkt svigrúm í kjölfar barnsmissis. Það var gert með samþykkt frumvarps í júní síðastliðinn um sorgarleyfi foreldra sem missa barn. 

Slík sorgarleyfi þekkjast ekki víða og með lagasetningunni hefur Ísland skipað sér í fremstu röð á meðal jafningja.

„Eitt af því sem mér finnst sérstaklega vænt um í lögunum er hvernig hugtakið foreldri er skilgreint með mun víðtækari hætti en í annarri löggjöf,“ sagði ráðherra í ávarpi sínu. Fleiri en tveir einstaklingar geti átt rétt á sorgarleyfi, það er einnig stjúp- og fósturforeldrar. Þannig sé sorg fjölskyldunnar í heild viðurkennd óháð fjölskyldugerð. Með því sé lögunum ætlað að koma til móts við fjölbreytt fjölskyldumynstur í íslensku samfélagi. Sveigjanleiki til atvinnuþátttöku samhliða sorgarleyfi sé þar að auki rýmri á Íslandi en annars staðar.

Jafnframt kom fram í máli ráðherra að vinna sé hafin í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu við greiningu á mögulegum næstu skrefum varðandi sorgarleyfi í fleiri tilvikum en við barnsmissi, fósturlát eða andvana fæðingu.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-09-01-Svigrum-til-ad-vinna-ur-sorg

Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 18:48
Versions
1 recorded
Identity
2022-09-01-Svigrum-til-ad-vinna-ur-sorg

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.