Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar er komin út

Imported from official source

Announcement

Finance Classified by Officially

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2022 er komin út. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahagsmála og launa á yfirstandandi kjarasamningstímabili.

Meðal helstu niðurstaðna skýrslunnar eru að:

  • Hagvöxtur var um 4% á samningstímabilinu en gert var ráð fyrir 10% vexti í upphafi þess. Hagvöxtur á hvern íbúa var neikvæður um 4%.
  • Fjárhagsstaða heimilanna er óvenju sterk og tekjur háar í alþjóðlegum samanburði.
  • Áhrif stríðsins í Úkraínu á innlenda efnahagsþróun virðast tiltölulega lítil miðað við aðrar þjóðir, að minnsta kosti til skamms tíma.
  • Alls voru gerðir 326 kjarasamningar í samningalotunni, þ.a. 189 í einkageiranum og 137 í opinberageiranum.
  • Grunntímakaup hækkaði um tæp 23% á vinnumarkaðnum frá upphafi samningstímabilsins í apríl 2019 til janúar 2022. Hækkunin nemur rúmum 21% á almenna markaðnum og tæp 30% hjá Reykjavíkurborg. Hluta hækkunarinnar má rekja til styttingar vinnuvikunnar eða á bilinu 1,3%-4,1%.
  • Heildarlaun fullvinnandi á árinu 2021 voru að meðaltali 823 þús. kr. á mánuði.Í samanburði milli markaða voru heildarlaun fullvinnandi á almennum markaði að meðaltali 808 þúsund kr. á mánuði, 903 þúsund kr. hjá ríkinu, 688 þúsund hjá Reykjavíkurborg og 681 þús. kr. hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur.
  • Laun kvenna hafa í flestum tilfellum hækkað meira en karla á samningstímabilinu. Á vinnumarkaðnum í heild eru fullvinnandi konur með um 86% af heildarlaunum fullvinnandi karla. Munurinn er minnstur hjá Reykjavíkurborg þar sem fullvinnandi konur eru með tæp 95% af heildarlaunum fullvinnandi karla en 86-89% á öðrum mörkuðum.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-11-Ny-skyrsla-kjaratolfraedinefndar-er-komin-ut

    Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 08, 2026 18:48
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2022-07-11-Ny-skyrsla-kjaratolfraedinefndar-er-komin-ut

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.