Drög að reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra í samráðsgátt

Imported from official source

Announcement

Drög að reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 11. ágúst 2022.

Reglugerðardrögin innihalda lýsingar á umferðarmerkjum, umferðarljósum, hljóðmerkjum og öðrum merkjum á eða við veg til stjórnunar á eða leiðbeiningar fyrir umferð. Gerðar eru talsverðar breytingar á flokkunarkerfi umferðarmerkja, m.a. til einföldunar og í því skyni að samræma við alþjóðlega staðla.

Í drögunum er lagt til að tekin verði upp á fimmta tug nýrra umferðarmerkja, á annan tug nýrra yfirborðsmerkinga og tvenn ný umferðarljós. Þá er lagt til að gera breytingar á útliti á fimmta tug merkja og að fella á brott á sjöunda tug merkja. Markmiðið er að merking umferðarmerkja verði gerð skýrari, orðalag samræmt og tilmæli til veghaldara færð í viðauka. Ã viðaukum er fjallað um hvernig veghaldari skuli nota umferðarmerki, þar á meðal um kröfur til tæknilegrar útfærslu og uppsetningar.

Innviðaráðherra skipaði starfshóp til að vinna reglugerðardrögin. Hópurinn var skipaður fulltrúa Vegagerðarinnar sem leiddi hópinn og fulltrúum ráðuneytisins, Samgöngustofu, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Við vinnuna hafði starfshópurinn m.a. hliðsjón af ákvæðum sáttmála Sameinuðu þjóðanna um umferðarmerki og umferðarljós frá 1968 auk þess sem litið var til regluverks á öðrum Norðurlöndum.

Flokkun umferðarmerkja og helstu breytingar

  • Fjögur ný merki eru kynnt; til að vara við holum, skertri sýn vegna veðurs, umferðartöfum og slysi.
  • Fleiri myndmerki verða í boði til að vara við dýrum í umferð, m.a. nýtt merki með kanínum.
  • Kynnt er nýtt merki fyrir fléttuakstur.
  • Flokkur bannmerkja tekur óverulegum breytingum frá gildandi reglugerð.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-15-Drog-ad-reglugerd-um-umferdarmerki-og-notkun-theirra-i-samradsgatt

    Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 08, 2026 18:55
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2022-07-15-Drog-ad-reglugerd-um-umferdarmerki-og-notkun-theirra-i-samradsgatt

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.