Helstu nýmæli í nýjum heildarlögum um loftferðir

Imported from official source

Announcement

Ný heildarlög um loftferðir tóku gildi í dag en þau voru samþykkt á Alþingi 16. júní sl. Þau koma í stað eldri loftferðalaga sem að grunni til voru frá árinu 1998.

Markmið laganna er að stuðla að og tryggja öruggar, greiðar og skilvirkar flugsamgöngur í samræmi við stefnu stjórnvalda að teknu tilliti til neytendaverndar, umhverfissjónarmiða og þjóðréttarlegra skuldbindinga Íslands. Er það afar mikilvægt til að tryggja frekari vöxt og framgang samkeppnishæfrar flugstarfsemi hér á landi með umhverfisvænum hætti.

Skipta má helstu breytingum sem lögin fela í sér í tvo flokka:

Annars vegar eru breytingar er varða stjórn flugmála og eftirlit. Helgast þær fyrst og fremst af breytingum sem orðið hafa á síðastliðnum árum í tengslum við aðild Íslands að Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins, EASA. Nú er með skýrari hætti kveðið á um verkaskiptingu Samgöngustofu og EASA í lögunum. Þessi verkaskipting á rót sína að rekja til nýrrar grunngerðar Evrópusambandsins á sviði flugs, reglugerðar (ESB) nr. 2018/1139 um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins o. fl., sem tekin verður upp í EES-samninginn á haustmánuðum. Umfang þessarar gerðar er mikið en hún tekur til nær allra þátta í flugstarfsemi, bæði einstaklinga og lögaðila í almenningsflugi, sem og verkefna og eftirlits yfirvalda.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-13-Helstu-nymaeli-i-nyjum-heildarlogum-um-loftferdir

Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
Imported
October 08, 2026 18:55
Versions
1 recorded
Identity
2022-07-13-Helstu-nymaeli-i-nyjum-heildarlogum-um-loftferdir

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.