Frumvarp um leigubifreiðar kynnt í samráðsgátt með breytingum

Imported from official source

Announcement

Drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 27. júlí 2022.

Að meginstefnu til er um sama frumvarp að ræða og lagt hefur verið fram áður á Alþingi, en ekki náð fram að ganga. Til stendur að leggja það fram að nýju á 153. löggjafarþingi í haust með þeim breytingum sem lagðar voru til í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á 152. löggjafarþingi, auk annarra minniháttar breytinga. 

Markmið með frumvarpinu er að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu, neytendum og þjónustuveitendum til hagsbóta. Þá er frumvarpinu ætlað að tryggja að íslenska ríkið uppfylli þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem það hefur undirgengist samkvæmt samningnum um evrópska efnahagssvæðið, auk þess að færa lög og reglur um leigubifreiðar til nútímalegra horfs með öruggar og tryggar samgöngur að leiðarljósi. 

Helstu breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá síðustu framlagningu eru eftirfarandi:

  • Sett hefur verið inn skilgreining á hugtakinu leigubifreiðastöð.
  • Rekstrarleyfi veitir rétt til reksturs einnar eða fleiri leigubifreiða í stað þess að leyfið veiti aðeins rétt til reksturs einnar bifreiðar.
  • Veita má einstaklingum og lögaðilum rekstrarleyfi í stað þess að aðeins megi veita einstaklingum slíkt leyfi.
  • Fellt er brott skilyrði um starfsstöð hér á landi til geta fengið útgefið rekstrarleyfi eða starfsleyfi leigubifreiðastöðvar.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Infrastructure (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2022-07-06-Frumvarp-um-leigubifreidar-kynnt-i-samradsgatt-med-breytingum

    Officially imported this from Ministry of Infrastructure (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Infrastructure (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Innvidaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 08, 2026 18:55
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2022-07-06-Frumvarp-um-leigubifreidar-kynnt-i-samradsgatt-med-breytingum

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.