Ríkisstjórn samþykkir aðgerðir til að fjölga lögreglumönnum

Imported from official source

Announcement

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu dómsmálaráðherra um að stöðugildum innan lögreglu verði fjölgað um fimmtíu og að fjölgunin komi til framkvæmda þegar á þessu ári.

Heildarfjöldi starfandi lögreglumanna hefur ekki haldist í hendur við fólksfjölgun í landinu, stórfellda aukningu á komum ferðamanna til landsins né heldur hvað varðar breytt landslag afbrota.

Þá hefur vopnaburður meðal almennings aukist og lögreglumenn lenda oftar í hættulegum aðstæðum en áður, en vopnatilkynningum til lögreglu hefur fjölgað verulega á umliðnum árum.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra 
„Fáliðuð lögregla ógnar öryggi fólksins í landinu sem og lögreglumannanna sjálfra. Það er skýr stefna ríkisstjórnarinnar að bæta úr þessu og leggja aukna áherslu á öryggismál og öfluga löggæslu um land allt. Með fjölgun lögreglumanna verður almenn löggæsla efld til muna og svigrúm skapað til að taka á skipulagðri brotastarfsemi af meiri þunga.“

Aðgerðir til fjölgunar á þessu ári

Stöðugildum innan lögreglu verður fjölgað þegar á þessu ári og leitað leiða til þess að ráða sem fyrst í þær stöður. Til þess að ná fram raunfjölgun starfsmanna verður nemendum í lögreglufræðum fjölgað og brugðist við brottfalli lögreglumanna úr starfi. 

Lagt er til að strax á þessu ári verði allt að 95 nemendur teknir inn í lögreglunám, að því gefnu að þeir standist inntökuskilyrði.

Greina þarf ástæður brottfalls úr lögreglunni og leita leiða til að snúa vörn í sókn í þeim efnum. Lagt er til að lögregluráði verði falið að setja af stað verkefni til þess að fá aftur til starfa lögreglumenn sem horfið hafa frá starfi, sem verði síðan nánar útfært og framkvæmt í hverju embætti fyrir sig.

Aðgerðir til lengri tíma til eflingar lögreglu

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-02-03-Rikisstjorn-samthykkir-adgerdir-til-ad-fjolga-logreglumonnum

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 11:00
Versions
1 recorded
Identity
2025-02-03-Rikisstjorn-samthykkir-adgerdir-til-ad-fjolga-logreglumonnum

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.