Kynbundinn launamunur minnkar samkvæmt nýrri rannsókn

Imported from official source

Announcement

Kynbundinn launamunur hefur dregist saman á árabilinu 2019 – 2023 hvort heldur litið er til atvinnutekna, leiðrétts eða óleiðrétts launamunar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Hagstofu Íslands Ã¡ launamun karla og kvenna. Jafnréttismál munu flytjast til dómsmálaráðuneytisins þann 1. mars frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu en dómsmálaráðherra hefur þegar tekið við forræði málaflokksins.  

Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að á tímabilinu hafi munur á atvinnutekjum karla og kvenna minnkað um 3,6 prósentustig. Óleiðréttur launamunur á tímakaupi reglulegra heildarlauna hefur minnkað um 4,6 prósentustig og leiðréttur launamunur hefur minnkað um 0,8 prósentustig sbr. meðfylgjandi yfirlit.

Óleiðréttur launamunur - tímakaup reglulegra heildarlauna

Leiðréttur launamunur metur hvort karlar og konur með sambærilegan bakgrunn og í sambærilegum störfum fái sambærileg laun. Leiðréttur launamunur árið 2023 var mestur meðal starfsmanna á almennum vinnumarkaði 4,5% , meðal ríkisstarfsmanna var munurinn 3,0% og meðal starfsfólks sveitarfélaga var munurinn 0,6%.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra er ánægð með þá jákvæðu þróun að launamunur milli kynjanna sé að jafnast. Aftur á móti telur hún að stjórnvöld þurfi alltaf að vera vakandi fyrir fjölbreyttum leiðum til að ná árangri:

„Nú felst helsta áskorunin í vanmati á hefðbundnum kvennastörfum miðað við hefðbundin karlastörf. Næstu skref eiga að vera að leiðrétta kerfisbundið vanmat á virði kvennastarfa“.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-01-21-Kynbundinn-launamunur-minnkar-samkvaemt-nyrri-rannsokn

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 11:00
Versions
1 recorded
Identity
2025-01-21-Kynbundinn-launamunur-minnkar-samkvaemt-nyrri-rannsokn

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.