Jakob Birgisson og Þórólfur Heiðar Þorsteinsson aðstoða dómsmálaráðherra

Imported from official source

Announcement

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Jakob Birgisson og Þórólf Heiðar Þorsteinsson sem sína aðstoðarmenn.

Jakob Birgisson útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 2018. Hann hefur starfað sem uppistandari síðan og hefur haldið fjölda sýninga um land allt. Samhliða uppistandi hefur Jakob starfað við texta- og hugmyndavinnu hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Þá hefur hann verið sjálfstætt starfandi við textagerð, stefnumótun og kynningarmál. Jakob á einnig feril í dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Eiginkona hans er Sólveig Einarsdóttir hagfræðingur og eiga þau saman dæturnar Herdísi og Sigríði. Þau eru búsett í vesturbæ Reykjavíkur.

Þórólfur Heiðar Þorsteinsson lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og hlaut lögmannsréttindi árið 2010. Þá lauk hann LL.M gráðu frá Uppsalaháskóla árið 2015. Þórólfur hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu frá árinu 2022, en áður starfaði hann sem lögfræðingur hjá Bankasýslu ríkisins og BBA//Fjeldco.

Þórólfur hefur mikla reynslu af félagsstörfum og er meðal annars varaformaður aðalstjórnar Breiðabliks og formaður áfrýjunardómstóls Körfuknattleikssambands Íslands. Þá hefur hann þjálfað yngri flokka í körfuknattleik hjá Breiðablik í mörg ár. Jafnframt er hann einn af eigendum veitingastaðarins Mossley á Kársnesinu.

Þórólfur er fæddur og uppalinn í Austur - Húnavatnssýslu en býr nú á Kársnesinu ásamt sambýliskonu sinni, Kristínu Evu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóri Gagarín og eiga þau fjögur börn.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-01-02-Jakob-Birgisson-og-Thorolfur-Heidar-Thorsteinsson-adstoda-domsmalaradherra

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 11:00
Versions
1 recorded
Identity
2025-01-02-Jakob-Birgisson-og-Thorolfur-Heidar-Thorsteinsson-adstoda-domsmalaradherra

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.