Forstöðumenn í lykilhlutverki
Imported from official source
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra sagði í ávarpi sínu á fundi með forstöðumönnum stofnana að þeir væru í lykilhlutverki við innleiðingu á stefnu og áætlanagerð ríkisstjórnarinnar og við að leiða breytingar og umbætur í þjónustu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem heldur úti stjórnendasetri ríkisins, stóð á dögunum fyrir fundi með forstöðumönnum en fundurinn er hluti af fræðsluröð sem ætlað er að efla stjórnun, auka árangur og eftirfylgni með stefnu ríkisstjórnarinnar hjá stofnunum ríkisins.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 09, 2026 11:01
- Change
- Initial
- Content hash
3b349a4112157b030a8a70280f2e0311- All versions
- Revision history