Heildarendurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki

Imported from official source

Announcement

Finance Classified by Officially

Heildarendurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki stendur nú yfir, í samræmi við ákvæði laganna um að endurskoðun skuli lokið fyrir 1. janúar 2027. Endurskoðunin er unnin í samvinnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Fyrr á árinu var skipaður starfshópur um endurskoðunina undir forystu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Vinnu við endurskoðunina er skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum er áhersla lögð á að bæta laga- og regluverk um framkvæmd, umgjörð og skilyrði stuðningsins. Stefnt er að því að leggja fram frumvarp með tilheyrandi breytingum á haustþingi 2025. Á sama tíma er unnið að því að hraða og bæta verklag við yfirferð umsókna og eftirlit í samvinnu við Rannís og Skattinn. Í seinni áfanganum verður sjónum beint að stefnumótun með hliðsjón af umfangi kerfisins og samspil við önnur stuðningskerfi ríkisins á sviði rannsókna og þróunar. Gert er ráð fyrir að frumvarp þess efnis verði lagt fram á haustþingi 2026.

Afar mikilvægt er að stuðningurinn sé markviss og skili ávinningi fyrir íslenskt efnahagslíf, ekki síst í ljósi mikils útgjaldavaxtar. Árið 2019 námu útgjöld vegna kerfisins 3,1 ma.kr. en áætlað er að þau nemi 18,6 ma.kr. árið 2026, sem jafngildir sexföldun.

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hafa bent á að skattalegur stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki mælist hár á Íslandi í samanburði við OECD-ríki. Á sama tíma benda þau á að auka þurfi skilvirkni kerfisins, m.a. með hliðsjón af mikilli útgjaldaaukningu. Þá er mælt með að skýra og skerpa á skilyrðum fyrir stuðningi, auka eftirlit og varnir gegn misnotkun ásamt því að tryggja sjálfbærni kerfisins til lengri tíma til að hámarka efnahagslegan ávinning.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025-09-15-Heildarendurskodun-laga-um-studning-vid-nyskopunarfyrirtaeki

Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 09, 2026 11:01
Versions
1 recorded
Identity
2025-09-15-Heildarendurskodun-laga-um-studning-vid-nyskopunarfyrirtaeki

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.