Nýjar leiðbeiningar EDPB um sektir og samspil DSA og GDPR
Digital Rights Classified by Officially
Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur samþykkt nýjar leiðbeiningar um beitingu stjórnsýslusekta samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
Markmið þeirra er að samræma framkvæmd persónuverndarstofnana á Evrópska efnahagssvæðinu þegar ákveðið er hvort leggja skuli á stjórnvaldssekt, eina og sér eða samhliða öðrum úrræðum.
Í leiðbeiningunum er sett fram fimm þrepa aðferðafræði við mat á því hvort leggja skuli á sekt. Meðal annars þarf að meta hvort brot geti varðað sekt, hver beri ábyrgð á því, hvort brotið hafi verið framið af ásetningi eða gáleysi, hvaða íþyngjandi eða málsbætandi atriði eigi við og hvort sekt sé skilvirk, meðalhófskennd og hafi nægjanleg varnaðaráhrif. Leiðbeiningarnar eru nú í opinberu samráði til 13. nóvember 2026.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Persónuvernd (Icelandic DPA).
Read the original at the source: https://island.is/s/personuvernd/frett/nyjar-leidbeiningar-edpb-um-sektir-og-samspil-dsa-og-gdpr
Officially imported this from Persónuvernd (Icelandic DPA)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Persónuvernd (Icelandic DPA) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=personuvernd RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/personuvernd/frett/nyjar-leidbeiningar-edpb-um-sektir-og-samspil-ds...