Breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur taka gildi 1. júní
Samgöngustofa vekur athygli á breytingum á lögum um leigubifreiðaakstur sem taka gildi 1. júní 2026.
Samgöngustofa hefur sent rekstrarleyfishöfum og leigubifreiðastöðvum upplýsingabréf um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur sem taka gildi 1. júní 2026.
Allir sem reka leigubifreið þurfa að vera skráðir á leigubifreiðastöð með gilt leyfi frá Samgöngustofu.
Leigubifreiðastöðvar þurfa að skrá allar ferðir rafrænt. Þar á meðal eru upplýsingar um upphaf og lok ferðar, leiðina og greiðslu. Gögnin þarf að geyma í að minnsta kosti 60 daga.
Rafræn skráningarkerfi stöðvanna skulu fara í árlega úttekt hjá óháðum aðila sem Samgöngustofa hefur samþykkt.
Stöðvar þurfa að bjóða upp á ferli fyrir kvartanir. Farþegar eiga að geta tilkynnt óeðlilega hátt verð eða slæma þjónustu. Leigubifreiðastjórum verður skylt að upplýsa farþega um þessi réttindi.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority).
Read the original at the source: https://island.is/s/samgongustofa/frett/breytingar-a-loegum-um-leigubifreidaakstur-taka-gildi-1-juni
Officially imported this from Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=samgongustofa RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/samgongustofa/frett/breytingar-a-loegum-um-leigubifreidaakstur-taka...