Vorfundur smábátasjómanna haldinn í fyrsta skipti þann 9. apríl 2026
Safety Classified by Officially
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 halda Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysvarnafélagið Landsbjörg sameiginlegan vorfund smábátasjómanna um öryggi á sjó. Þetta er í fyrsta skipti sem fundur af þessu tagi er haldinn.
Fundurinn fer fram á netinu til að tryggja að smábátasjómenn um land allt geti fylgst með. Útsending fundarins er kl. 17:00-18:30. Samhliða verða einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar með opið hús á 16 stöðum víðs vegar um landið þar sem sjómenn úr nærumhverfinu geta komið saman, fengið sér kaffi og fylgst með fundinum í sameiningu.
Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Samgöngustofu, Slysavarnaskóla sjómanna og Landhelgisgæslu Íslands fjalla um mál sem eru efst á baugi þegar kemur að öryggi sjómanna, nú þegar styttist í að strandveiðar hefjist. Sérstök áhersla verður lögð á öryggi við frágang gúmmíbjörgunarbáta um borð. Auk þess verður kynntur nýr bæklingur og fræðsluauglýsing sem unnin hefur verin í samvinnu Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority).
Read the original at the source: https://island.is/s/samgongustofa/frett/vorfundur-smabatasjomanna-haldinn-i-fyrsta-skipti-thann-9-april-2026
Officially imported this from Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Samgöngustofa (Icelandic Transport Authority) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=samgongustofa RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/samgongustofa/frett/vorfundur-smabatasjomanna-haldinn-i-fyrsta-skip...