Bólusetning gegn árlegri inflúensu veturinn 2026-2027
Safety Classified by Officially
Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 15. október næstkomandi.
Tvö ólík bóluefni gegn inflúensu verða notuð hér á landi í vetur:
Hefðbundið óvirkjað inflúensubóluefni sem hæfir börnum frá 6 mánaða aldri og fullorðnum verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 15. október næstkomandi. Bóluefni sem notað verður í bólusetningum veturinn 2026-2027 samkvæmt samningum sóttvarnalæknis við Icepharma er:
Influvac – 90.000 skammtar samkvæmt samningi við útboð 2025
Eins og undanfarin ár verður dreifingu forgangsraðað til hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnana sem bólusetja forgangshópa fyrstu vikurnar. Þess er vænst að bólusetningar forgangshópa geti hafist um allt land upp úr miðjum október en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það væntanlega í nóvember, þar með talið aðilar sem sinna bólusetningum á vinnustöðum.
Dreifing óvirkjaðs inflúensubóluefnis til aðila sem sinna bólusetningum miðast við það magn sem pantað var síðastliðinn vetur nema annað hafi komið fram í samskiptum sóttvarnalæknis við ábyrgðaraðila bólusetninga.
Lifandi veiklað nefúðabóluefni fyrir börn frá 2 ára aldri verður tilbúið til afhendingar til heilsugæsla frá 30. september næstkomandi:
Fluenz – 15.000 skammtar samkvæmt samningi sóttvarnalæknis við Vistor við útboð 2025
Bóluefnið er ætlað fyrir öll börn 2-4 ára og 5-17 ára börn með áhættuþætti en án frábendinga. Börn sem ekki geta þegið Fluenz verður boðið Influvac ef það hæfir. Börn sem óskað er eftir inflúensubólusetningu fyrir þótt þau hafi ekki sérstaka áhættuþætti geta fengið Fluenz meðan það er til ófyrnt.
Ef aðrir en heilsugæslur hafa hug á að bjóða Fluenz fyrir börn má senda fyrirspurn á sóttvarnalækni ([email protected]).
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
Börn undir 5 ára aldri, sem hafa náð 6 mánaða aldri þegar bólusett er.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).
Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/bolusetning-gegn-arlegri-influensu-veturinn-2026-2027
Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/landlaeknir/frett/bolusetning-gegn-arlegri-influensu-veturinn-2026-...