Lýðheilsuvísar 2026 kynntir á Egilsstöðum 16. september

Imported from official source

Announcement

Lýðheilsuvísar 2026 verða kynntir miðvikudaginn 16. september næstkomandi kl. 13:00-15:00 á Berjaya Hérað Hótel Egilsstöðum. Embætti landlæknis stendur að viðburðinum í samstarfi við Múlaþing. Öll eru velkomin á staðinn en einnig verður hægt að fylgjast með kynningunni í streymi.

Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Birting lýðheilsuvísa á landsvísu og eftir heilbrigðisumdæmum hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2016 og undanfarin ár hafa einnig verið gefnir út lýðheilsuvísar fyrir fjölmennustu sveitarfélögin. Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda heilbrigðisþjónustu, sveitarfélögum, þar með talið heilsueflandi samfélögum, og öðrum hagaðilum að greina stöðuna á sínu svæði, finna styrkleika og áskoranir og meta þarfir íbúa þannig að hægt sé að vinna með markvissum hætti að bættri heilsu og vellíðan allra.

Velkomin. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings

Um lýðheilsuvísa 2026. María Heimisdóttir, landlæknir

Lýðheilsuvísar tengdir samfélaginu, heilsu og sjúkdómum. Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga

Lýðheilsuvísar tengdir sóttvörnum. Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir

Lýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum og líðan. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs

Hagnýt notkun gagna í heimabyggð. Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir, sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu og Anna Alexandersdóttir, sviðsstjóri velferðar hjá Múlaþingi.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/lydheilsuvisar-2026-kynntir-a-egilsstoedum-16-september

Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/landlaeknir/frett/lydheilsuvisar-2026-kynntir-a-egilsstoedum-16-sep...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.