Um geislavirk efni í neytendavörum

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Eftir að hafa fengið ábendingu um að verið væri að selja vöru sem innihéldi geislavirk efni á Íslandi létu Geislavarnir ríkisins innkalla vöruna í byrjun árs 2024. Í kjölfar þess ákvað stofnunin að gera markaðskönnun á því hvort verið væri að selja fleiri vörur hérlendis sem innihéldu geislavirk efni.

Fljótlega eftir að geislavirk efni voru uppgötvuð við þarsíðustu aldamót var byrjað að bæta geislavirkum efnum í ýmsar vörur og markaðssetja þær sem heilsuvörur. Má þar nefna tannkrem og sölt sem voru seld á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar. 

Það tók nokkurn tíma fyrir samfélagið og yfirvöld að átta sig á hættunni sem fylgir geislavirkum efnum og fyrir stjórnvöld að búa til regluverk utan um notkun geislavirkra efna.  

Í dag er bannað að blanda geislavirkum efnum í matvæli, leikföng og skartgripi svo einhver dæmi séu tekin. Hins vegar er réttlætanlegt að hafa geislavirk efni í reykskynjurum enda ávinningurinn meiri en áhættan í því tilviki auk þess sem neytendur verða ekki fyrir geislun frá þeim. 

Fyrir u.þ.b. fjórum árum fengu hollensk yfirvöld ábendingar um sölu á hálsmenum og armböndum sem væru mögulega geislavirk. Þegar þessar ábendingar voru skoðaðar kom í ljós að nokkur fyrirtæki voru að auglýsa svokallaðar “heilsu” vörur sem áttu að gefa frá sér neikvæðar jónir (e. negative ions). Samkvæmt seljendunum áttu vörurnar  að hafa mjög jákvæð áhrif á heilsu notanda. Tíu vörur frá fjórum mismunandi framleiðendum voru mældar og í ljós kom að geislavirkum efnum hafði verið blandað í allar vörurnar. Hægt er a finna yfirlit yfir niðurstöðurnar frá Hollandi hérna: 

 Niðurstöður mælinga sýndu jafnframt, að miðað við eðlilega notkun þessara hluta þá gat geislaálag á húð farið rétt yfir viðmiðunarmörk fyrir almenning. Þrátt fyrir það er áhættan ekki mikil, enda eru viðmiðunarmörk vegna geislunar mjög ströng. Engu að síður valda vörurnar óþarfa geislun á fólk og því er mælt gegn notkun þeirra.  

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Geislavarnir ríkisins (Icelandic Radiation Safety Authority).

Read the original at the source: https://island.is/s/geislavarnir-rikisins/frett/fraedsla-um-geislavirk-efni-i-neytendavoerum

Officially imported this from Geislavarnir ríkisins (Icelandic Radiation Safety Authority)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Geislavarnir ríkisins (Icelandic Radiation Safety Authority) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=geislavarnir-rikisins RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/geislavarnir-rikisins/frett/fraedsla-um-geislavirk-efni-i-neytendav...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.