Almyrkvi á sólu 2026
Safety Classified by Officially
Himintunglin stíga einstakan dans 12. ágúst 2026 þegar almyrkvi verður á sólu. Til að njóta sjónarspilsins á öruggan hátt þarf að huga að ýmsu.
Nauðsynlegt er að nota örugg sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að gleraugun uppfylli EN ISO 12312-2:2015 staðalinn og beri CE-merkingu. Ekki á að nota venjuleg sólgleraugu og ekki skal horfa beint í sólina án sólmyrkvagleraugna eða í gegnum myndavélalinsur, kíki eða snjallsíma án viðurkenndra varna (filter, sólmyrkvagleraugu).
Þegar fylgst er með sólmyrkva eða almyrkva er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:
Minnkandi birtustig er blekkjandi og getur leitt til þess að fólk gleymi að verja augun.
Þegar almyrkvi á sér stað þarf að taka af sér sólmyrkvagleraugun til að sjá hina eiginlegu sólkórónu. Þetta augnablik þar sem óhætt er að horfa berum augum á sólmyrkvann varir í u.þ.b. 2 mín vestast á landinu og um 1 mín á höfuðborgarsvæðinu.
Það þarf að setja á sig gleraugun um leið og sólin fer að ná í gegn á ný.
Allir sem eru utan almyrkvasvæðis (restin af landinu) þurfa að vera með sólmyrkvagleraugu allan tímann.
Foreldrar og forráðamenn þurfa sérstaklega að huga að börnum og þeim sem ekki hafa þroska til að skilja mikilvægi og nauðsyn þess að setja sólmyrkvagleraugun upp þegar almyrkva lýkur. Þessir einstaklingar eru í sérstakri hættu á að verða fyrir augnskaða.
Sjónhimnan getur orðið fyrir varanlegum skaða á nokkrum sekúndum ef horft er beint í sólina. Einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum síðar, sem minnkuð sjón, blindur blettur eða blinda.
Helstu einkenni ljósskaða á sjónhimnunni eru meðal annars minnkuð eða brengluð sjón, breytt litasýn, móðusýn, minnkuð skerpa, blindur blettur eða blinda. Önnur einkenni geta fylgt, þar á meðal höfuðverkur og ljósnæmi.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Embætti landlæknis (Directorate of Health).
Read the original at the source: https://island.is/s/landlaeknir/frett/almyrkvi-a-solu-2026
Officially imported this from Embætti landlæknis (Directorate of Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Embætti landlæknis (Directorate of Health) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=landlaeknir RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/landlaeknir/frett/almyrkvi-a-solu-2026