Notkun og fjöldi ljósabekkja á Íslandi - ný gögn

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Hlutfall þeirra sem hafa farið í ljós síðustu 12 mánuði á Íslandi er nú 5% og er það einu prósentustigi lægra en í síðustu könnun sem gerð var 2022. Þetta sýna nýlegar niðurstöður könnunar á notkun ljósabekkja á Íslandi sem Gallup gerði fyrir samstarfshóp Geislavarna, Embættis Landlæknis, húðlækna og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins. Einnig fækkar ljósabekkjum á Íslandi skv. síðastu talningu Geislavarna á fjölda ljósabekkja sem gerð var 2023. Þá var fjöldi ljósabekkja á Íslandi 86 en til samanburðar var fjöldinn 97 árið 2020. Geislavarnir ráða fólki frá því að nota ljósabekki enda fylgir notkun þeirra aukin hætta á húðkrabbameini.

Það vekur athygli að þrátt fyrir að hlutfall þeirra sem hafa farið í ljós hafi lækkað á milli kannana þá sýna niðurstöðurnar að þeir sem fara á annað borð í ljós fara oftar í ljós núna en árið 2022. Meðalfjöldi skipta sem svarendur hafa farið í ljós á sl. 12 mánuðum fer úr 0,2 skiptum upp í 0,6 skipti. Þar ber mest á því að fleiri fara vikulega eða oftar í ljós: Árið 2022 var hlutfallið 0% en er nú 0,7%. Einnig eru fleiri sem fara í ljós 1-3 sinnum í mánuði. Árið 2022 var hlutfallið 0,1% en er nú 0,4%. Myndin hér að neðan sýnir hvernig þróunin hefur verið frá upphafi mælinga á hlutfalli fullorðinna sem notuðu ljósabekki á undangengum 12 mánuðum. 

Geislavarnir ríkisins hafa talið ljósabekki á Íslandi á þriggja ára fresti frá árinu 2005 og var síðasta talning gerð í lok árs 2023. Þá voru samtals 16 staðir sem seldu almenningi aðgang að ljósabekkjum með samtals 86 ljósabekki, þar af 64 á höfuðborgarsvæðinu og 22 utan þess. Myndin að neðan sýnir hvernig fjöldi ljósabekkja á Íslandi hefur þróast frá árinu 2005. 

Norrænu geislavarnastofnanirnar hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um ráðleggingar gegn notkun ljósabekkja og hana má finna hér. 

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Geislavarnir ríkisins (Icelandic Radiation Safety Authority).

Read the original at the source: https://island.is/s/geislavarnir-rikisins/frett/notkun-og-fjoeldi-ljosabekkja-a-islandi-ny-goegn

Officially imported this from Geislavarnir ríkisins (Icelandic Radiation Safety Authority)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Geislavarnir ríkisins (Icelandic Radiation Safety Authority) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=geislavarnir-rikisins RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/geislavarnir-rikisins/frett/notkun-og-fjoeldi-ljosabekkja-a-islandi...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.