Tölulegar upplýsingar um álagningu einstaklinga 2026
Finance Classified by Officially
Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2026, á tekjur ársins 2025. Tekjuskattur og útsvar hafa að mestu þegar verið innheimt í staðgreiðslu en í álagningunni fer fram endanlegt uppgjör þessara skatta.
Þar að auki er lagt á útvarpsgjald, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa og tryggingagjald, sem lagt er á einstaklinga með rekstur í eigin nafni. Við álagningu eru einnig ákvarðaðar barna- og vaxtabætur.
Þann 1. júní verða inneignir samkvæmt niðurstöðum álagningar lagðar inn á bankareikninga þeirra gjaldenda sem eiga inni hjá ríkissjóði.
Framteljendum á skattgrunnskrá fjölgar á milli ára, en á grunnskrá voru nú 359.948 einstaklingar, 5.772 fleiri en fyrir ári sem er fjölgun um 1,63%. Skattar 25.021 einstaklinga voru áætlaðir en það er um 6,95% af heildarfjölda á grunnskrá. Hlutfall áætlana nú er ívið minna en í fyrra, en þá var áætlað á 7,34% framteljenda.
Ríkisskattstjóri hefur í gegnum tíðina leitast við að bæta þjónustu við framteljendur. Nú er orðið mun auðveldara fyrir flesta að telja fram til skatts þar sem framtöl eru að mestu leyti unnin rafrænt og samskipti við framteljendur fara að miklu leyti fram á netinu. Betri skil gagna og aðstoð við framteljendur hafa fækkað villum og einfaldað framtalsgerðina fyrir all flesta. Hefðbundin pappírsframtöl heyra sögunni til en nú skiluðu 99,74% framteljenda rafrænu skattframtali.
Framlagning álagningarskrár og kærufrestur
Álagningarskrá einstaklinga verður lögð fram mánudaginn 17. ágúst og liggur frammi í 15 daga, til og með 31. ágúst.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Skatturinn (Iceland Revenue and Customs).
Read the original at the source: https://island.is/s/skatturinn/frett/toelulegar-upplysingar-um-alagningu-einstaklinga-2026
Officially imported this from Skatturinn (Iceland Revenue and Customs)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Skatturinn (Iceland Revenue and Customs) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=skatturinn RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/skatturinn/frett/toelulegar-upplysingar-um-alagningu-einstaklinga-2026