Skattframtal 2026 - Skilafrestur til 13. mars
Finance Classified by Officially
Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, á þjónustuvef Skattsins í dag. Frestur til að skila er til 13. mars. Allar helstu upplýsingar eru foráritaðar inn á framtalið og því fljótlegt og auðvelt að yfirfara upplýsingar, bæta við ef eitthvað vantar og staðfesta að lokum.
Fagaðilar, bókarar og endurskoðendur hafa frest til 15. apríl til að skila fyrir sína skjólstæðinga
Til að opna framtalið þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil. Mælt er með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningu. Unnt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka.
Þau sem náðu 16 ára aldri á árinu 2025 þurfa að skila skattframtali í fyrsta sinn nú árið 2026. Þau sem ekki eiga rafræn skilríki geta sótt um veflykil og nýtt hann til auðkenningar á þjónustusíðu. Mögulegt er að fá veflykil sendan í pósti á lögheimili eða sendan í heimabanka viðkomandi.Upplýsingar um rafræn skilríki barna undir 18 áraSækja veflykil
Þau sem búsett eru erlendis geta þurft að skila skattframtali á Íslandi þrátt fyrir búsetu erlendis, t.d. ef viðkomandi hefur fengið tekjur frá Íslandi á árinu 2025, á eignir á Íslandi eða sækist eftir skattalegri heimilisfesti, svo dæmi séu tekin.
Eigi fólk búsett erlendis ekki þess kost að nýta sér rafræn skilríki og eigi ekki nú þegar virkan veflykil er hægt að sækja um að fá nýjan veflykil sendan. Fylla þarf út þar til gert form og verður beiðni um veflykil afgreidd eins fljótt og auðið er.Sækja veflykil erlendis búsettra
Við veitum aðstoð í síma 442 1414 og tökum á móti fyrirspurnum á netfanginu [email protected]. Þá getur spjallmennið svarað allskyns spurningum um framtalið.
Framtalsleiðbeiningar er hægt að nálgast inni í framtalinu með því að smella á bláa spurningamerkið við hvern kafla.
Einnig má spyrja spjallmennið okkar, þar er hægt að fá svör við mörgum spurningum. Spjallmennið talar bæði íslensku og ensku.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Skatturinn (Iceland Revenue and Customs).
Read the original at the source: https://island.is/s/skatturinn/frett/skattframtal-2026-skilafrestur-til-13-mars-27-2-2026
Officially imported this from Skatturinn (Iceland Revenue and Customs)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Skatturinn (Iceland Revenue and Customs) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=skatturinn RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/skatturinn/frett/skattframtal-2026-skilafrestur-til-13-mars-27-2-2026