Fyrsti gjalddagi kílómetragjalds á öll ökutæki - greiðsluseðlar birtir í heimabönkum

Imported from official source

Announcement

Finance Classified by Officially

Greiðsluseðill vegna kílómetragjalds ökutækja mun berast eigendum og umráðamönnum í heimabanka föstudaginn 30. janúar. Reikningurinn verður jafnframt aðgengilegur í pósthólfi þeirra á Mínum síðum á Ísland.is sunnudaginn 1. febrúar.

Einn reikningur vegna kílómetragjalds verður sendur á kennitölu gjaldskylds eiganda/umráðamanns fyrir öll ökutæki sem skráð eru á viðkomandi. Allt að 200 ökutæki geta verið á sama reikningi.

Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds, sem lagt er á öll gjaldskyld ökutæki frá áramótum, er 1. febrúar. Greitt er fyrir akstur í janúar samkvæmt meðalakstri sem reiknaður er út frá skráðri kílómetrastöðu á akstursmæli ökutækis.

Hægt er að skoða skráningarsögu kílómetrastöðu ökutækisins á Mínum síðum á Ísland.is.

Hafi einstaklingar ekki skráð stöðu kílómetragjalds er enn tími til að ganga frá skráningu. Ef staðan hefur ekki verið skráð 1. apríl leggst á vanskráningargjald. Gjaldið er þó fellt niður ef mætt er með ökutækið í aflestur á skoðunarstöð innan 30 daga.

Aðeins ein skráning kílómetrastöðu liggur fyrir

Ef aðeins ein skráning á kílómetrastöðu liggur fyrir er greitt eftir áætlun ríkisskattstjóra. Áætlunin er gerð upp og endurgreitt eða mismunur innheimtur eftir að önnur skráning kílómetrastöðu hefur borist.

Ef raunakstur er almennt minni en á því tímabilinu milli skráninga kílómetrastöðunnar er hægt að skrá kílómetrastöðu aftur eftir 30 daga frá síðustu skráningu og fá álagningu á það gjaldtímabil sem liðið. Of há bráðabirgðagreiðsla er þá gerð upp og ef bráðabirgðagreiðsla er hærri er mismunur endurgreiddur.

Bráðabirgaðgreiðsla byggir á rangri skráningu

Leiðrétta má ranga skráningu kílómetrastöðu með því að fara með ökutæki á skoðunarstöð í sérstakan álestur.

Í umferð geta verið ökutæki sem aðeins sýna akstur í mílum en ekki kílómetrum.

Eigendur og umráðamenn slíkra ökutækja þurfa að:

Skrá stöðu ekinna mílna, eins og hún birtist í mælaborðinu, í reitinn Kílómetrastaða á Mínum síðum

Skatturinn mun umreikna mílur í kílómetra við útreikning kílómetragjalds.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Skatturinn (Iceland Revenue and Customs).

Read the original at the source: https://island.is/s/skatturinn/frett/fyrsti-gjalddagi-kilometragjalds-a-oll-okutaeki-greidslusedlar-birtir-i-heimabonkum-30-1-2026

Officially imported this from Skatturinn (Iceland Revenue and Customs)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Skatturinn (Iceland Revenue and Customs) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=skatturinn RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/skatturinn/frett/fyrsti-gjalddagi-kilometragjalds-a-oll-okutaeki-gr...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.