Öll á vinnustað þurfa að taka höndum saman um að einelti, áreitni og ofbeldi sé ekki liðið

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Samanburðarrannsókn um einelti, áreitni og ofbeldi á íslenskum vinnumarkaði er komin út en rannsókn sama efnis kom út árið 2019. Niðurstöður sýna að einelti, áreitni og ofbeldi viðgengst áfram á vinnustöðum landsins þó einhverjar breytingar til batnaðar hafi orðið. Ljóst þykir að öll á vinnustað, bæði stjórnendur og starfsfólk, þurfa að taka ábyrgð á eigin hegðun á vinnustað.

Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann bæði upphaflegu rannsóknina og samanburðarrannsóknina að beiðni Vinnueftirlitsins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Niðurstöður samanburðarrannsóknarinnar sýna að einelti, áreitni og ofbeldi viðgengst áfram á vinnustöðum landsins en upphaflega rannsóknin leiddi töluvert umfang í ljós. Þó virðist sem stjórnendur séu orðnir meðvitaðri um ábyrgð sína en fleiri vinnustaðir hafa gert áhættumat vegna sálfélagslega vinnuumhverfisins og fleiri vinnustaðir eru með viðbragðsáætlun vegna eineltis, áreitni og ofbeldis.

Hins vegar liggur fyrir að öll, hvort sem eru stjórnendur eða starfsfólk, þurfa að taka ábyrgð á eigin hegðun og sýna samstarfsfólki vinsemd og virðingu í samskiptum sínum. Vinnueftirlitið hvetur til þess að vinnustaðir innleiði heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á öryggi og vellíðan starfsfólks.

Meginmarkmið samanburðarrannsóknarinnar var að kanna hvort breyting hefði orðið á umfangi eineltis, kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni (EKKO) meðal starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði, ásamt því að afla upplýsinga um tíðni og reynslu af ofbeldi á vinnustað. Niðurstöðurnar sýna að einelti, áreitni og ofbeldi þrífst á íslenskum vinnumarkaði og í stórum dráttum er ekki að merkja miklar breytingar á milli rannsókna, þó einhverjar séu.

Niðurstöðum rannsóknarinnar er ítarlega lýst í skýrslunni en hér eru fáein dæmi:

Umfang eineltis hefur haldist stöðugt á milli áranna 2019 og 2024-2025. Um 22% höfðu orðið fyrir einelti á vinnuferli sínum.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/oell-a-vinnustad-thurfa-ad-taka-hoendum-saman-um-ad-einelti-areitni-og-ofbeldi-se-ekki-lidid

Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/oell-a-vinnustad-thurfa-ad-taka-hoendum-saman...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.