Vinnueftirlitið hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í fjórða sinn

Imported from official source

Announcement

Vinnueftirlitið hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025 og er það fjórða árið í röð sem stofnunin hlýtur þann heiður.

Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar í að minnsta kosti 40/60.

Að þessu sinni hlutu 90 fyrirtæki, sextán sveitarfélög og tuttugu og tveir opinberir aðilar viðurkenningu úr hópi 253 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu.

Viðurkenningunum er ætlað að vekja athygli á þeim fyrirtækjum og stofnunum sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í jafnréttismálum og hvetja aðra til dáða.

"Við erum afar ánægð með að hljóta þessa viðurkenningu enda viljum við vera öðrum góð fyrirmynd hvað varðar öryggi og vellíðan á vinnustað og vitum sem er að jafnrétti er ein forsenda þess að hægt sé að innleiða heilbrigða vinnustaðamenningu. Viðurkenningin er sérstaklega ánægjuleg að þessu sinni þegar við minnumst 50 ára afmælis kvennafrídagsins 24. október næstkomandi," segir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/vinnueftirlitid-hlytur-vidurkenningu-jafnvaegisvogarinnar-i-fjorda-sinn

Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/vinnueftirlitid-hlytur-vidurkenningu-jafnvaeg...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.