Kynning á rannsóknarverkefnum Vinnuverndarsjóðs

Imported from official source

Announcement

Vinnueftirlitið stendur, fimmtudaginn 28. ágúst næstkomandi, fyrir morgunfundi þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknarverkefna sem hlutu styrk úr Vinnuverndarsjóði vorið 2024. Einnig mun félags- og húsnæðismálaráðherra veita styrki til þeirra verkefna sem hlutu úthlutun árið 2025. 

Vinnuverndarsjóður er samstarfsverkefni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Honum er ætlað að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Fyrstu styrkir úr sjóðnum voru veittir árið 2024. 

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun veita styrki til þeirra verkefna sem hlutu úthlutun árið 2025 en einnig verða kynntar niðurstöður eftirfarandi rannsókna: 

Staðsetning vinnunnar og líðan starfsfólks: Fjarvinna, staðvinna og blönduð vinna. 
Dr. Thamar Heijstra og Dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Háskóla Íslands. 

Sjálfvirkni- og snjallvæðing: Bölvun eða blessun fyrir velferð starfsfólks?  
Dr. Arney Einarsdóttir Háskólanum á Bifröst og Dr. Katrín Ólafsdóttir Háskólanum í Reykjavík. 

Álagsþættir í starfsumhverfi og kulnun meðal hjúkrunarfræðinga á Landspítala.  
Dr. Guðný Gústafsdóttir Háskóla Íslands og Dr. Ásdís Aðalbjörg Arnalds Háskóla Íslands. 

Hvernig  skapast góð vinnustaðamenning í leik- og grunnskólum þar sem vel gengur?
- Niðurstöður rannsóknar um reynslu kennara og skólastjórnenda.
 
Dr. Sigrún Gunnarsdóttir og Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir Háskóla Íslands. 

Vinnuvernd fyrir nemendur af erlendum uppruna 
- Hvað er mikilvægt að ræða um? 
Steinunn Björk Ragnarsdóttir og Lilja Guðný Jóhannesdóttir Tækniskólanum 

Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu frá klukkan 9 – 11 og eru áhugasöm hvött til þess að skrá sig með tölvupósti á netfangið: [email protected] fyrir lok dags 26. ágúst næstkomandi. 

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/kynning-a-rannsoknaverkefnum-vinnuverndarsjods

Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/kynning-a-rannsoknaverkefnum-vinnuverndarsjods

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.