Vinnueftirlitið í þriðja sæti meðalstórra ríkisstofnana í könnun um stofnun ársins

Imported from official source

Announcement

Vinnueftirlitið er í þriðja sæti í hópi meðalstórra ríkisstofnanna í könnun um stofnun ársins 2024 og er því í hópi fyrirmyndarstofnana 2024. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar í gær.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargrar annarra stofnana. Niðurstöður veita upplýsingar um vinnuumhverfi og samanburð við aðrar stofnanir. Tilgangurinn er að veita þeim vinnustöðum viðurkenningu sem náð hafa framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs og einnig að gefa stjórnendum tækifæri til að vinna að frekari umbótum í stjórnun og vinnuumhverfi vinnustaða segir á vefsíðu Sameykis. 

„Það  er okkur mikill heiður að fá þessa viðurkenningu. Hún skiptir okkur miklu máli í ljósi þess að við viljum vera góð fyrirmynd þar sem störf okkar felast í því að hvetja vinnustaði landsins til að stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks,“ segir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri.  

"Við vitum að heilbrigð vinnustaðamenning leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks og hefur jákvæð áhrif á árangur og orðspor vinnustaða. Við sem vinnum saman hjá Vinnueftirlitinu höfum öll lagt okkar lóð á vogaskálarnar til að ná þessum frábæra árangri. Lykillinn er að við erum öll þátttakendur í þessari mikilvægu vegferð okkar og berum öll ábyrgð. Við erum til staðar fyrir hvert annað, tileinkum okkur jákvæð viðhorf og uppbyggilega endurgjöf." 

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/vinnueftirlitid-i-thridja-saeti-i-hopi-medalstorra-rikisstofnana

Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/vinnueftirlitid-i-thridja-saeti-i-hopi-medals...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.