Óskað eftir umsóknum um styrki í Vinnuverndarsjóð
Vinnueftirlitið óskar eftir umsóknum um styrki í Vinnuverndarsjóð. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði.
Vinnuverndarsjóður er samstarfsverkefni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Honum er ætlað að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Fyrstu styrkir úr sjóðnum voru veittir árið 2024.
Frestur til að skila inn umsóknum í sjóðinn er til þriðjudagsins 8. apríl næstkomandi. Stefnt er að úthlutun styrkja í júní 2025.
Athugið að fresturinn hefur verið framlengdur. Hann var áður til fimmtudagsins 27. mars
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér nánar reglur um úthlutun styrkja úr Vinnuverndarsjóði en við mat á umsóknum verður einkum litið til verkefna og rannsókna er varða tengsl einstakra sjúkdóma og vinnutengdra einkenna við vinnuumhverfi.
Styrkhæfar umsóknir eru einnig verkefni og rannsóknir er varða:
samfélagslegan og efnahagslegan ávinning af vinnuvernd
orsakir, tíðni og þróun vinnuslysa í ákveðnum starfsgreinum
jákvæða ímynd og viðhorf almennings til vinnuverndar
vitundarvakningu einstakra hópa á vinnumarkaði um vinnuvernd, svo sem starfsfólks sem skilur ekki íslensku, ungs fólks og starfsfólks er sinnir áhættusömum störfum.
þekkingu á mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar
tengsl slæmra vinnuskilyrða og fjarveru starfsfólks
aukna vitund almennings um vinnutengda kulnun og hvernig megi fyrirbyggja hana
viðbrögð við áhrifum aukinnar sjálfvirkni og tæknivæðingar á vinnuumhverfið
áhrif samþættingar fjarvinnu og vinnu á vinnustað á vinnuvernd
Almennar upplýsingar um umsækjanda, nafn verkefnisstjóra og annarra þátttakenda og samstarfsaðila, ef einhverjir eru
Upplýsingar um menntun og fræðilegan bakgrunn umsækjanda og upplýsingar um fyrri verkefni sem tengist vinnuvernd
Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og þýðing
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).
Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/oskad-eftir-umsoknum-um-styrki-i-vinnuverndarsjod
Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
- Official source
- https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
- Imported
- October 03, 2026 20:38
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/oskad-eftir-umsoknum-um-styrki-i-vinnuverndar...