Vilt þú stuðla að vinnuvernd með skoðun vinnuvéla?

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi? Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði.

Viðkomandi mun koma til með að sinna skoðunum á vinnuvélum og tækjum ásamt því að veita leiðbeiningar á sviði vinnuverndar og vinna að sérverkefnum. Gleði, lausnarmiðað hugarfar og léttleiki eru eiginleikar sem við leitum að.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Skoðunarsvæðið er almennt höfuðborgarsvæðið og nærliggjandi sveitarfélög en einnig geta komið til skoðanir á öðrum landsvæðum. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum getur verið um lengri ferðalög að ræða.

Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd eftirlits með skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum (lyftarar, jarðvinnuvélar, kranar, húsalyftur, vinnulyftur, katlar og aðrar tilfallandi vinnuvélar og tæki). Í því felst meðal annars skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum sem sett eru fram.

Þátttaka í umbótastarfi og þróun eftirlits með vinnuvélum, húsalyftum og tækjum sem stofnunin sinnir.

Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.

Sinnir verklegum og skriflegum prófum á vinnuvélar og tæki.

Menntun sem nýtist í starfi, svo sem vélvirkjun, rafvirkjun, bifvélavirkjun, vélfræði eða sambærilegt.

Sérhæfð reynsla sem nýtist í starfi, svo sem vinna við stjórnun og viðgerðir vinnuvéla.

Sérhæfð þekking sem nýtist við skoðanir og eftirlit.

Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health).

Read the original at the source: https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/vilt-thu-studla-ad-vinnuvernd-med-skodun-vinnuvela

Officially imported this from Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Vinnueftirlitið (Administration of Occupational Safety and Health) — imported from official source
Official source
https://island.is/rss.xml?organization=vinnueftirlitid RSS
Imported
October 03, 2026 20:38
Versions
1 recorded
Identity
https://island.is/s/vinnueftirlitid/frett/vilt-thu-studla-ad-vinnuvernd-med-skodun-vinn...

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.