Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt

Imported from official source

Announcement
  • Frumvarp um náttúru- og innviðagjald lagt fram í Samráðsgátt
  • Gjald verður lagt á einstaklinga 18 ára og eldri sem ekki hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi fyrir aðgang að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum.
  • Ekki verður innheimt gjald af einstaklingum sem búsettir eru á Íslandi
  • Við greiðslu fær viðkomandi skírteini sem veitir aðgang að stöðunum þremur í eitt ár.
  • Gjaldið verður 4.500 kr. á háannatíma frá 1. júní til 30. október og 3.000 kr. frá 1. nóvember til 31. maí.
  • Áætlað er að gjaldtaka muni hefjast þann 1. maí 2027.
  • Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald. Í frumvarpinu er lagt til að tekið verði upp náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins, Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stuðla að öryggi, álagsstýringu og verðmætasköpun  í ferðaþjónustu líkt og fram kemur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

    Einstaklingar sem hafa ekki skattalega heimilisfesti á Íslandi þurfa að greiða náttúru- og innviðagjald að upphæð kr. 4.500 fyrir skírteinið sem gildir í eitt ár. Utan háannatíma eða á tímabilinu 1. nóvember til 31. maí er gjaldið kr. 3.000. Gjaldið nær ekki til fólks með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem hefur þegar tekið þátt í fjármögnun innviða og náttúruverndar sem skattgreiðendur. Ríkisfang ræður ekki gjaldskyldunni. Hins vegar þurfa allir einstaklingar 18 ára og eldri að afla rafræns aðgangsskírteinis (QR - kóði) fyrir umrædd svæði. Ferðaskrifstofum og ferðasölum verður gert kleift að kaupa skírteini fyrir fram fyrir sína viðskiptavini.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Industries (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-22-frumvarp-um-natturu-og-innvidagjald-lagt-fram-i-samradsgatt

    Officially imported this from Ministry of Industries (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Industries (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Atvinnuvegaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:30
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-09-22-frumvarp-um-natturu-og-innvidagjald-lagt-fram-i-samradsgatt

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.