Móðir jörð hlaut viðurkenningu fyrir lífræna framleiðslu

Imported from official source

Announcement

Hjónin Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon hlutu viðurkenningu atvinnuvegaráðherra fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Viðurkenningin var afhent á lífræna deginum 19. september sl.

Eygló og Eymundur eru eigendur fyrirtækisins Móðir jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði sem um árabil hefur verið brautryðjandi í lífrænni ræktun og matvælaframleiðslu á Íslandi. Lífræn ræktun í Vallanesi hófst formlega árið 1995 þegar býlið fékk lífræna vottun en ræktun með þeim aðferðum á sér lengri sögu á bænum.

Í Vallanesi er nú stunduð lífræn ræktun á korni og fjölbreyttu grænmeti, auk fullvinnslu matvæla úr hráefni sem að stórum hluta er ræktað á staðnum. Þar hefur einnig verið lögð áhersla á skógrækt og skjólbelti. 
Sérstök áhersla hefur jafnframt verið lögð á að auka notkun íslensks byggs til manneldis og þróa rétti og vörur þar sem þetta næringarríka heilkorn fær að njóta sín.

Árangur Eyglóar og Eymundar verður ekki aðeins mældur í uppbyggingunni í Vallanesi. Þau hafa rutt brautina í lífrænni ræktun, nýtingu staðbundinna auðlinda og fullvinnslu eigin hráefnis og þannig haft áhrif langt út fyrir eigin starfsemi. 
Þau hafa jafnframt miðlað þekkingu á lífrænni framleiðslu og stuðlað að auknum skilningi á möguleikum hennar hér á landi.

Atvinnuvegaráðuneytið óskaði eftir tilnefningum til verðlaunanna og komu til greina einstaklingar, fyrirtæki og félög sem þykja hafa skarað fram úr á sviði framleiðslu, nýsköpunar, vöruþróunar, markaðssetningar, sölu eða kynningar á lífrænum vörum. Afhending viðurkenningarinnar er hluti af aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Industries (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/modir-jord-hlaut-vidurkenningu-fyrir-lifraena-framleidslu

Officially imported this from Ministry of Industries (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Industries (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Atvinnuvegaraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:30
Versions
1 recorded
Identity
modir-jord-hlaut-vidurkenningu-fyrir-lifraena-framleidslu

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.