Breytt skipulag lögreglu kynnt í lögregluráði

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti á fundi lögregluráðs í gær fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Með breytingunum stendur til að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú auk þess sem skerpt verður á hlutverki ríkislögreglustjóra.  Ráðherra kynnti minnisblað um breytingarnar á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag.

„Með þessum breytingum er ætlunin fyrst og fremst að styrkja lögregluna um land allt og gera hana betur í stakk búna til að takast á við sífellt flóknari verkefni. Baráttan við skipulagða brotastarfsemi kallar á meiri sérhæfingu og sterkari liðsheildir. Með stærri og öflugri embættum skapast betri forsendur til að byggja upp slíka getu í öllum embættum og nýta mannafla með markvissari hætti. Um leið leggjum við ríka áherslu á að þjónusta og viðbragðsgeta lögreglu haldist sterk um allt land,“ segir dómsmálaráðherra.

Sameina á embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum.  Embætti lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vesturlandi og Vestfjörðum verða sameinuð í eitt og lögreglustjóraembættin á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Með því verða til tvö öflug embætti á landsbyggðinni. Núverandi starfsstöðvar verða jafn margar og með aðstoðarlögreglustjórum í hverju umdæmi verður nálægð við ákvörðunartöku tryggð.

Starfandi lögreglustjórar hafa forgang umfram aðra til að sækjast eftir nýjum lögreglustjóraembættum. Fái þeir ekki skipun í embætti verður þeim boðin staða aðstoðarlögreglustjóra. Fari lögreglustjóri í hvorugt embætti, er honum tryggður lögbundinn biðlaunaréttur.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-25-breytt-skipulag-logreglu-kynnt-i-logregluradi

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
2026-09-25-breytt-skipulag-logreglu-kynnt-i-logregluradi

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.