Ísland styrkir stöðu sína í efsta sæti yfir kynjajafnrétti

Imported from official source

Announcement

Ísland er 17. árið í röð í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) yfir jafnrétti kynjanna. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu ráðsins um alþjóðlega kynjabilið (e. Global Gender Gap).

Listinn felur í sér árlegt mat í 148 hagkerfum um allan heim á fjórum meginsviðum kynjajafnréttis, þ.e. á sviði atvinnutækifæra og þátttöku á vinnumarkaði, menntunar, heilsu og afkomu og stjórnmálaþátttöku Ísland bætir sig um 0,5%  og uppfyllir þar með 93% viðmiða Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti í ár.

„Það er mikið fagnaðarefni að Ísland sé enn og aftur í efsta sæti í kynjajafnrétti á heimsvísu. Efsta sætið þýðir samt ekki að jafnrétti sé í höfn. Við tökum ábendingum alvarlega og þær sýna að markmiðinu er ekki náð og enn er margt sem hægt er að bæta,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Ísland stendur best að vígi á sviði menntunar (99%), því næst heilsu og afkomu (96%), stjórnmálaþátttöku (95,%) og að lokum atvinnutækifæra og þátttöku á vinnumarkaði (81%). Engin önnur þjóð á listanum uppfyllir yfir 90% viðmiða ráðsins. Næst á eftir Íslandi eru Finnland (87,2%), Noregur (85,7%), Bretland (84,2%), Svíþjóð (82,3%), Þýskaland (81,7%) og Írland (81,4%).

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Justice (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/island-styrkir-stodu-sina-i-efsta-saeti-yfir-kynjajafnretti

Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
island-styrkir-stodu-sina-i-efsta-saeti-yfir-kynjajafnretti

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.