Öryggi almennings í forgrunni á komandi þingvetri

Imported from official source

Announcement

Safety Classified by Officially

Öflugri aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, umfangsmiklar breytingar á skipulagi lögreglu, ný heildarlög um almannavarnir og áframhaldandi endurskoðun í málefnum útlendinga eru meðal frumvarpa sem dómsmálaráðherra hyggst leggja fram á komandi þingi. Samhliða verður áfram unnið að einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu.

Þingmálaskrá fyrir komandi þingvetur var birt í dag. Dómsmálaráðherra er með sautján mál á sinni dagskrá.

„Öryggi almennings er og verður ein af frumskyldum ríkisins og það endurspeglast í þingmálaskránni. Við ætlum að styrkja lögregluna og verkfæri hennar gegn skipulagðri glæpastarfsemi, efla viðbúnað og þjóðaröryggi og halda áfram endurskoðun á útlendingalögum. Um leið höldum við áfram að einfalda stjórnsýsluna og nýta bæði fjármuni og mannafla betur,“  segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Helstu mál dómsmálaráðherra í þingmálaskrá

  • Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
  • Frumvarp um breytingu á refsiramma vegna vændiskaupa
  • Breytingar á lögum um öryggisþjónustu
  • Öflugri löggæsla og fastar tekið á skipulagðri brotastarfsemi

    Fyrsta frumvarpið sem ráðherra hyggst mæla fyrir eru aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Frumvarpið var sett í samráðsgátt í síðustu viku. Þar eru lagðar til 12 breytingar á lögum og reglum sem allar lúta að því að gera baráttuna gegn skipulögðum brotahópum skilvirkari.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Justice (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/oryggi-almennings-i-forgrunni-a-komandi-thingvetri-2026-09-10

    Officially imported this from Ministry of Justice (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Justice (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Domsmalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    oryggi-almennings-i-forgrunni-a-komandi-thingvetri-2026-09-10

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.