Einföldun, stytting og aukin skilvirkni: Breytingar á skipulagslögum birtar í samráðsgátt

Imported from official source

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Frumvarpið er hluti af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðgerðum stjórnvalda í húsnæðimálum. Markmiðið er að aðlaga skipulagslöggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem við á. „Við erum að einfalda málsmeðferð, stytta ferla, auka skilvirkni og nýta stafrænar lausnir í auknum mæli. Breytingarnar eru liður í áframhaldandi þróun skipulagslöggjafarinnar og miða að því að tryggja að hún styðji áfram við markmið um sjálfbæra þróun, vandaða skipulagsgerð og góða stjórnsýslu. Þá hef ég líka lagt áherslu á að finna lausn ef sveitarfélög eru ósammála um vaxtamörk og hér eru skref stigin í átt að því,“ segir Ragnar Þór.  

This version

Version
1 of 1
Recorded
October 04, 2026 07:31
Change
Initial
Content hash
f1ef25ccd1bca062785afc4f71599db8
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.