Fyrstu leiðbeiningar um samræmda skráningu í félagsþjónustu komnar út

Imported from official source

Announcement

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gefið út fyrstu leiðbeiningar um samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu. Leiðbeiningarnar eru hluti af samstarfi ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu. Þær eru ætlaðar þeim sem veita félagsþjónustu, þeim sem sjá um gerð hugbúnaðar og annarra lausna til skráningar hennar – og öðrum þeim sem tengjast lögbundinni félagsþjónustu sveitarfélaganna.

  • Samræmd gögn gefa betri yfirsýn og markmiðið er að tryggja samfellda þjónustu, stuðla að betri nýtingu fjármuna og gera stefnumótun stjórnvalda markvissari.
  • Ætlunin er að tryggja að sambærilegar upplýsingar séu skráðar með sama hætti óháð því hvar á landinu þjónustan er veitt.
  • Í júlí lögðu ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga fram sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu til ársins 2028. Nýju leiðbeiningarnar eru eitt af fyrstu skrefunum í innleiðingu framtíðarsýnarinnar.

    Fyrsti áfanginn nær til stuðnings- og stoðþjónustu

    Leiðbeiningarnar verða byggðar upp í áföngum. Fyrsta útgáfa nær til grunnskráningar í stuðnings- og stoðþjónustu.

  • Í leiðbeiningunum eru skilgreind lágmarksatriði sem ætlast er til að verði skráð við veitingu lögbundinnar félagsþjónustu, svo sem hver þjónustuveitandinn er, hvert form þjónustunnar er og hvaða verkþættir eru veittir.
  • Meðal þeirra verkþátta sem eru skilgreindir eru til dæmis aðstoð við persónulegt hreinlæti, heimilisstörf, innkaup, máltíðir, lyf, félagslega virkni, hreyfingu og skipulag.
  • Áhersla er lögð á að skráningin verði ekki íþyngjandi og að upplýsingar sem þegar þarf að skrá við veitingu þjónustunnar verði nýttar eins og kostur er.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-10-02-fyrstu-leidbeiningar-um-samraemda-skraningu-i-felagsthjonustu-komnar-ut

    Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-10-02-fyrstu-leidbeiningar-um-samraemda-skraningu-i-felagsthjonustu-komnar-ut

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.