Fyrstu leiðbeiningar um samræmda skráningu í félagsþjónustu komnar út

Imported from official source

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gefið út fyrstu leiðbeiningar um samræmda grunnskráningu í félagsþjónustu. Leiðbeiningarnar eru hluti af samstarfi ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu. Þær eru ætlaðar þeim sem veita félagsþjónustu, þeim sem sjá um gerð hugbúnaðar og annarra lausna til skráningar hennar – og öðrum þeim sem tengjast lögbundinni félagsþjónustu sveitarfélaganna. Samræmd gögn gefa betri yfirsýn og markmiðið er að tryggja samfellda þjónustu, stuðla að betri nýtingu fjármuna og gera stefnumótun stjórnvalda markvissari. Ætlunin er að tryggja að sambærilegar upplýsingar séu skráðar með sama hætti óháð því hvar á landinu þjónustan er veitt.

This version

Version
1 of 1
Recorded
October 04, 2026 07:31
Change
Initial
Content hash
f9ed7b2ce74666b2a578867ab9f5661f
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.