Stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Norðurlandi

Imported from official source

Announcement

Uppbygging nýrra hjúkrunarheimila á Akureyri og Húsavík er komin á fullt skrið. Búið er að taka tilboði Reita í byggingu hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri og framkvæmdir eru í fullum gangi við nýtt hjúkrunarheimili við Auðbrekku á Húsavík. Pekron ehf. reisir síðarnefnda hjúkrunarheimilið og er gert ráð fyrir að það rísi á um 12 mánuðum sem telst afar skammur framkvæmdatími miðað við umfang verkefnisins.

Uppbyggingin á Akureyri og Húsavík felur í sér verulega fjölgun hjúkrunarrýma og stórbætta aðstöðu á Norðurlandi og er liður í þjóðarátaki í málaflokknum.

Í mars sl. kynntu stjórnvöld áætlun um stórfellda fjölgun hjúkrunarrýma hér á landi. Gert er ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir árslok 2030 og að 90% þeirra verði hrein viðbót við þau hjúkrunarrými sem fyrir eru. Í árslok 2025 voru 3.062 hjúkrunarrými á landinu öllu.

„Góður gangur hefur verið í verkefnunum sem við höfum sett af stað og það er mikið gleðiefni að sjá langþráð hjúkrunarheimili loksins verða að veruleika,“ segir Inga Sæland, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu. „Við höfum spýtt í lófana og uppbyggingin er á fleygiferð. Þetta er nákvæmlega það sem við ætluðum okkur – að gjörbreyta stöðunni í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi og tryggja að eldra fólk fái þá umönnun, öryggi og þjónustu sem það á skilið.“

Þegar ríkið og Akureyrarbær undirrituðu samkomulagið um uppbygginguna í Þursaholti í maí 2025 var miðað við 80 hjúkrunarrými en fljótlega var ákveðið að fjölga þeim upp í 140.

  • Tilkynnt var í júní sl. að Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) hefði metið tilboð Reita hagstæðast með tilliti til verðs og afhendingartíma. Nú hafa samningar verið undirritaðir og hönnun og frekari útfærsla heimilisins eru fram undan.
  • This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/storsokn-i-uppbyggingu-hjukrunarryma-a-nordurlandi

    Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    storsokn-i-uppbyggingu-hjukrunarryma-a-nordurlandi

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.