Stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Norðurlandi
Imported from official source
Uppbygging nýrra hjúkrunarheimila á Akureyri og Húsavík er komin á fullt skrið. Búið er að taka tilboði Reita í byggingu hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri og framkvæmdir eru í fullum gangi við nýtt hjúkrunarheimili við Auðbrekku á Húsavík. Pekron ehf. reisir síðarnefnda hjúkrunarheimilið og er gert ráð fyrir að það rísi á um 12 mánuðum sem telst afar skammur framkvæmdatími miðað við umfang verkefnisins. Uppbyggingin á Akureyri og Húsavík felur í sér verulega fjölgun hjúkrunarrýma og stórbætta aðstöðu á Norðurlandi og er liður í þjóðarátaki í málaflokknum. Í mars sl. kynntu stjórnvöld áætlun um stórfellda fjölgun hjúkrunarrýma hér á landi. Gert er ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir árslok 2030 og að 90% þeirra verði hrein viðbót við þau hjúkrunarrými sem fyrir eru. Í árslok 2025 voru 3.062 hjúkrunarrými á landinu öllu.
This version
- Version
- 1 of 1
- Recorded
- October 04, 2026 07:31
- Change
- Initial
- Content hash
21947bb2149d733c10df0ad38f8e979c- All versions
- Revision history