Ásmundur Helgason skipaður forseti Félagsdóms

Imported from official source

Ásmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms en hann var áður varaforseti dómsins. Björn L. Bergsson hefur verið skipaður varaforseti eftir að hafa gegnt embætti dómara við Félagsdóm. Þá hefur Hólmfríður Grímsdóttir verið skipuð dómari við Félagsdóm. Skipanirnar koma í kjölfar þess að Ásgerður Ragnarsdóttir, fráfarandi forseti Félagsdóms, var skipuð dómari við Hæstarétt.  Ásgerður var skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026 og lét á sama tíma af störfum sem forseti Félagsdóms. 

This version

Version
1 of 1
Recorded
October 04, 2026 07:31
Change
Initial
Content hash
9562437f0820b7ec13677377f305a31c
All versions
Revision history

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.