Frumvörp sem hafa þýðingu fyrir fjölmarga landsmenn

Imported from official source

Announcement

Á þingmálaskrá félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir komandi þingvetur eru fjölbreytt málefni sem snerta daglegt líf fólks um land allt, meðal annars leigjendur, launafólk, örorkulífeyrisþega, ellilífeyrisþega, fatlað fólk og innflytjendur. Alls hyggst Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, leggja fram 14 mál á Alþingi, þar af 13 frumvörp og eina þingsályktunartillögu.

„Við ætlum að halda áfram að vinna í þágu fólksins. Þingmálaskrá vetrarins og þau fjölmörgu umbótamál sem þar er að finna endurspegla það,“ segir Ragnar Þór.

Aukið öryggi og fyrirsjáanleiki á húsnæðismarkaði

Fimm mál á þingmálaskrá félags- og húsnæðismálaráðherra snúa að húsnæðis- og mannvirkjamálum.

  • Með breytingum á húsaleigulögum verður lagt til að settur verði skýrari rammi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á samningstíma og að mánaðarleg vísitölutenging leigu verði óheimil. Markmiðið er að auka stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur.
  • Breytingar eru fyrirhugaðar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga til að auka réttarvernd leigjenda og leigusala, einfalda og skýra kröfuferla, auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu tryggingarfjár og fækka ágreiningsmálum.
  • Lög um almennar íbúðir verða endurskoðuð með það að markmiði að húsnæðisstuðningskerfið stuðli enn frekar að framboði íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
  • Lagðar verða til breytingar á skipulagslögum sem hafa það að markmiði að einfalda málsmeðferð og stytta skipulagsferla.
  • Breytingar á lögum um mannvirki tengjast síðan heildarendurskoðun byggingarreglugerðar og er meðal annars ætlað að gera byggingareftirlit skilvirkara, draga úr byggingargöllum og auka neytendavernd.
  • Þrjú frumvörp snúa að þjónustu við fatlað fólk, félagsþjónustu sveitarfélaga og rannsókn á alvarlegum óvæntum atvikum í velferðarþjónustu.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/frumvorp-sem-hafa-thydingu-fyrir-fjolmarga-landsmenn

    Officially imported this from Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Social Affairs and Housing (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Felags-og-husnaedismalaraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    frumvorp-sem-hafa-thydingu-fyrir-fjolmarga-landsmenn

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.