Uppfærð handbók um sameiningar ríkisstofnana

Imported from official source

Announcement

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út uppfærða handbók um sameiningar stofnana, sem inniheldur leiðbeiningar um undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni við sameiningar ríkisstofnana. Leiðbeiningunum er ætlað að styðja ráðuneyti, stjórnendur og verkefnisstjóra við að undirbúa og leiða sameiningar með markvissum hætti.

Sameining ríkisstofnana er umfangsmikið breytingaverkefni sem krefst skýrra markmiða, vandaðs undirbúnings og virkrar þátttöku stjórnenda og starfsfólks. Leiðbeiningarnar styðja við stefnu stjórnvalda um einfaldara og skilvirkara stofnanakerfi þar sem stofnanir hafa aukna getu til að sinna kjarnaverkefnum sínum og veita góða opinbera þjónustu.

Í leiðbeiningunum er sameiningarferlinu skipt í fimm skref:

  • Frumathugun á markmiðum og fýsileika sameiningar.
  • Samráð við starfsfólk og aðra hagsmunaaðila.
  • Gerð samrunaáætlunar með verk-, tíma- og kostnaðaráætlun.
  • Framkvæmd með virkri þátttöku starfsfólks.
  • Eftirfylgni og úttektir á árangri sameiningarinnar.
  • Sérstök áhersla er lögð á mannlega þáttinn og mikilvægi skýrra og reglulegra samskipta. Sameiningar geta valdið óvissu meðal starfsfólks og því skiptir miklu að byggja upp traust, tryggja þátttöku og vinna markvisst að mótun sameiginlegrar vinnustaðarmenningar.

    Leiðbeiningarnar innihalda einnig hagnýta gátlista um meðal annars hagsmunaaðila, starfsmannamál, verkefnastjórnun, fjármál, stjórnskipulag, vinnustaðamenningu og húsnæðismál. Þá er fjallað um hvernig nýta megi gervigreind með ábyrgum hætti við greiningar, áætlanagerð, samskipti og eftirfylgni í sameiningarferlinu.

    Útgáfan byggir á leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins frá árinu 2008 en efnið hefur verið endurskoðað og uppfært með hliðsjón af reynslu síðustu ára. Framsetningin er styttri og aðgengilegri og miðast við þarfir þeirra sem stýra sameiningarverkefnum í framkvæmd.

    This is an extract. The publication continues at the source.

    Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

    Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-28-uppfaerd-handbok-um-sameiningar-rikisstofnana

    Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

    Provenance

    Organization
    Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
    Official source
    https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
    Imported
    October 04, 2026 07:31
    Versions
    1 recorded
    Identity
    2026-09-28-uppfaerd-handbok-um-sameiningar-rikisstofnana

    Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.