Göng og brú kynnt fyrir alþjóðlegum ráðgjöfum og fjárfestum

Imported from official source

Announcement

Nýtt innviðafélag ríkisins, Göng og brú, hélt í dag kynningar- og markaðsdag í Hörpu sem er hluti af útboðsferli félagsins á EES svæðinu. Þar voru félagið og verkefni þess kynnt fyrir alþjóðlegum ráðgjöfum og fjárfestum. Erlendir sem og íslenskir samstarfsaðilar eru lykillinn að því að raungera þau verkefni sem stjórnvöld munu treysta félaginu fyrir til að rjúfa kyrrstöðu í stórum samgönguframkvæmdum.

Undirrituð var viljayfirlýsing milli innviðaráðuneytisins og Ganga og brúar um uppbyggingu samgöngumannvirkja. Viljayfirlýsingin er fyrsta skrefið í því að ríkið feli félaginu formlega ábyrgð þegar kemur að t.a.m. uppbyggingu, fjármögnun og rekstri verkefna á borð við samgöngumannvirki við Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú, Fljótagöng, Sundabraut og stækkun Hvalfjarðarganga.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fluttu erindi á fundinum. Auk þeirra tóku til máls Guðmundur Daði Rúnarsson, forstjóri Ganga og brúar, Stuart Cairns frá Bird&Bird, útboðsráðgjafa Ganga og brúar, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Esther Finnbogadóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Framtíðarsýn og umboð Ganga og brúar

Forsætisráðherra fjallaði um mikilvægi þess að rjúfa kyrrstöðu í stórum samgönguframkvæmdum með langtímahugsun og nýrri nálgun. Göng og brú verði sérhæft félag sem geti tryggt samfellu í undirbúningi, fjármögnun og framkvæmd verkefna sem bæta samgöngur, stytta ferðatíma og auka lífsgæði.

This is an extract. The publication continues at the source.

Source: Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland).

Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/gong-og-bru-kynnt-fyrir-althjodlegum-radgjofum-og-fjarfestum

Officially imported this from Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.

Provenance

Organization
Ministry of Finance and Economic Affairs (Iceland) — imported from official source
Official source
https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Fjarmala-og-efnahagsraduneytid/rss RSS
Imported
October 04, 2026 07:31
Versions
1 recorded
Identity
gong-og-bru-kynnt-fyrir-althjodlegum-radgjofum-og-fjarfestum

Officially records where a publication came from, not whether it is true. Imported records are reproduced from an organization's own official source.