Fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík
RÃkisstjórnin fjallaði à dag um niðurstöður þess hluta endurskoðaðs áhættumats fyrir GrindavÃk sem nú liggur fyrir. Niðurstöðurnar benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi à GrindavÃk séu ásættanlegar að þvà gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar.
à aprÃl sÃðastliðnum var það mat rÃkisstjórnarinnar að ekki væru að svo stöddu forsendur til að hefja skólahald að nýju à GrindavÃk eða stuðla að aukinni búsetu barna à bænum. Ãá lágu ekki fyrir skýrt skilgreind viðmið um ásættanlega áhættu sem gætu stutt slÃkar ákvarðanir.
SÃðan þá hefur verið unnið að endurskoðun áhættumats fyrir þéttbýli à GrindavÃk. Vinnan hefur meðal annars beinst að öryggi við daglega dvöl à bænum og við hugsanlega rýmingu, samfelldu skólahaldi, velferð barna og öryggi húsnæðis. Fjöldi sérfræðinga, hagaðila og GrindvÃkinga hafa tekið þátt à vinnunni.
Vinnu varðandi þessa afmörkuðu þætti áhættumatsins er nú lokið og verða niðurstöður kynntar á Ãbúafundi à GrindavÃk à kvöld. Vinnu við heildstætt áhættumat fyrir GrindavÃk verður haldið áfram og verður það endurskoðað reglulega eftir þvà sem aðstæður, þekking og reynsla þróast.
Niðurstöður vinnunnar benda til þess að unnt sé að halda áhættu fyrir fólk sem dvelur eða starfar à GrindavÃk innan sambærilegra marka og à öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá, að þvà gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og öryggisráðstafanir virkar. Aðstæður à GrindavÃk eru þó áfram sérstakar þar sem ógnin er viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið þar til goslokum hefur verið lÃst yfir.
This is an extract. The publication continues at the source.
Source: Prime Minister's Office (Iceland).
Read the original at the source: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-09-22-fyrstu-nidurstodur-endurskodads-ahaettumats-fyrir-grindavik
Officially imported this from Prime Minister's Office (Iceland)’s own source and shows an extract. If you work there, claiming the profile and verifying the domain lets you choose to show the full text here.
Provenance
- Organization
- Prime Minister's Office (Iceland) — imported from official source
- Official source
- https://www.stjornarradid.is/api/documents/views/frettir-news-articles/Forsaetisraduneyti/rss RSS
- Imported
- October 04, 2026 07:31
- Versions
- 1 recorded
- Identity
-
2026-09-22-fyrstu-nidurstodur-endurskodads-ahaettumats-fyrir-grindavik